Forsíða Fréttir Smá frettir 01/09
Smá frettir 01/09 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Magnús Guðlaugsson   
Mánudagur, 01. september 2008 20:35

Niðurhalskerfið komið upp

Jæja þá er niðurhalskerfið komið upp og full þýtt, ég mun bæta við skrám í það næstu helgi því ég hef ekki tíma í vikunni til að gera það en aðal skráin er þarna komin.

Niðurhalskerfið sem við notum heitir Remository og er frítt og ég mun láta þýðinguna á því í niðurhalskerfið næstu helgi.

 

Þýðingar uppfærsla 1.5.6.1 komin

Þessi útgáfa er bara með smá breitingu varðandi síðu númerin þetta Fyrsta - Fyrri - Næsta - Síðasta sem var áður beinþýtt og ekki alveg nógu gott.

Þýðingin á admin kerfinu gengur ágætlega og ég hef fengið smá liðstyrk með mér í það sem ætti að flýta fyrir og einnig er byrjað að þýða installerinn þannig að við verðum þá kominn með al-íslenskt Joomla kerfi á næstunni ef allt gengur vel. Eftir það ætti að koma stór lagfæring á síðu hlutanum líka til að samsvara þýðingum úr admin kerfinu. 

Nýjustu þýðinguna 1.5.6.1 er nú hægt að nálgast í Niðurhal hlutanum á síðunni okkar.

 
Joomlís! © 2008 Allur réttur áskilinn - joomlis@joomlis.net - Keyrt á Joomla! 1.5.14