| Joomla 1.5.9 |
|
|
|
| Skrifað af: Magnús Guðlaugsson |
| Þriðjudagur, 20. janúar 2009 03:08 |
|
Þessi útgáfa er með mikið af lagfæringum frá fyrri útgáfu og eins og alltaf er mælt með að fólk uppfæri síðuna sýna til að koma í veg fyrir að öryggisgallar séu misnotaðir og svo að síðan virki eðlilega. Þetta er fyrsta útgáfa sem kemur með íslenskri uppsetningu og erum við ánægðir með að hafa lokið þeirri þýðingu. Ef þú hefur áhuga á að sjá hvað er nýtt í 1.5.9 þá getur þú séð það hér
Þýðing á síðuhluta hefur einnig verið uppfærð Þýðingin var tekin í gegn og endurbætt öll í þessari útgáfu og uppfærð í 1.5.9.v1 Ég hef tekið eftir því að margir umsjónamenn vefsíðna eru ekki mikið að uppfæra hjá sér en ég vil biðja alla um að uppfæra núna því það voru mikið af stafsetningar og málfræðivillum í fyrri útgáfum. Þið þurfið bara að ná í þýðinguna og innsetja með Joomla, þið þurfið ekki að taka út fyrri þýðingu því þetta uppfærist núna sjálfkrafa. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 04. júní 2009 22:12 |



Joomla! 1.5.9 er komið út