| Joomla v1.5.8 komið út og uppfærð þýðing. |
|
|
|
| Skrifað af: Magnús Guðlaugsson |
| Laugardagur, 22. nóvember 2008 02:00 |
|
Joomla 1.5.8 er komið út Þessi útgáfa er með mikið af lagfæringum frá fyrri útgáfu og eins og alltaf er mælt með að fólk uppfæri síðuna sína. Ef þú hefur áhuga á að sjá hvað er nýtt í 1.5.8 þá getur þú séð það hér
Þýðing á 1.5.8 site er einnig komin út
Þýðingin á admin hlutanum Verðið að afsaka það að ég hef voðalega lítið unnið í þýðingunni síðasta mánuðinn eða tvo, stundum verður maður að taka frí frá þýðingum því þetta tekur soldið á þolinmæðina og áhuginn á það til að hverfa um tíma, en það þýðir samt ekki að maður sé hættur. Það er ekki mikið eftir að þýða af admin hlutanum svo þetta á að geta klárast fljótlega ef í það er farið af krafti. Það hafa nokkrir boðið mér hjálp en aðeins einn af þeim hefur skilað einhverju inn og ég vill þakka honum Alex fyrir það, vona að hann komi til með að hjálpa meira. Installerinn er líka verið að þýða svo þegar þetta er allt komið (síðu+admin hlutinn+installer) þá erum við komnir í raun með íslenskt vefumsjónarkerfi frá A-Ö því við munum gefa út pakka með Joomla kerfinu og þýðingum sem verður forstillt á íslensku. Vona að það líði ekki mjög langur tími þangað til það gerist.
kv. Magnús |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 29. desember 2008 22:38 |


